Koddaver úr 100% hreinni bómull með mjúku en endingargóðu yfirborði. Í koddaverinu eru örfínir silfurþrærðir sem leiða jarðtenginguna um verið.
Liturinn á koddaverinu er náttúrulegur bómullarlitur (e.off-white).Á einu horninu er tengibútur fyrir jarðtengingarsnúru.
Stærð:50cm x 80cm
Með koddaverinu fylgir 4,6 metra jarðtengingarsnúra.
Það er hægt að velja að sleppa því að kaupa og kló fyrir jarðtengingu með koddaverinu, þannig að ef þú hefur keypt lak líka getur þú samnýtt klónna sem fylgdi því en hver kló getur tengt 2 jarðtengingarsnúrur.
Lestu allt um jarðtengingu hér: https://www.myselflovestudio.com/umjardtengingu
Koddaver fyrir jarðtengingu
Það er nauðsynlegt að þvo bómullarvörurnar sem eru til jarðtengingar. Að þvo þær á réttan hátt mun ekki hafa skaðleg áhrif á þær heldur í raun hefur það þau áhrif að jarðtenging helst lengur í þræðunum. Þegar koddaverið er þvegið fer úr því líkamssviti og olíur úr húðinni sem geta komið í veg fyrir jaðrtengingu.
Við mælum með
- að þvo koddaverið vikulega eða í það minnsta hálfsmánaðarlega
- að þvo koddaverið í þvotta vél við 40°C
- að nota þvottefni sem er laust við hörð efni og olíur (sjá þvottefni sem við mælum með)
- að þurrka koddaverið annað hvort með því að hengja það upp eða í þurrkara á lægri hita en 65°C
- að strauja koddaverið á lágum hita, ef þú vilt strauja það
Við mælum EKKI með
- að þvo koddaverið með þvottefni sem inniheldur bleikiefni
- að þvo koddaverið með mýkingarefni
- að þvo koddaverið ekki með hvítunarefnum eða tæringarefnum (oxdent)
- að þvo koddaverið ekki með þvottefni sem gefur sterka lykt hvort sem er efnalykt eða ilmkjarnaolíur
- að þurrhreinsa koddaverið ekki
Bleikiefni, krem og olíur geta lagst á silfrið og komið þannig í veg fyrir að það leiði jarðtenginguna. Sama á við um mýkingarefni, það safnast utan á silfrið.
Vinsamlegast ath. líka að þvottaefnahólfið á þvottavélinni sé laust við leyfar af þvottefnum sem ekki henta fyrir þessar vörur áður en þvegið er.
Við ráðleggjum að bíða amk í klukkutíma með að leggjast á jarðtengdar vörur með silfurþráðum eftir að krem eða olíur hafa verið borin á sig.