top of page

Skilmálar Líf Óms

 

Upplýsingar um Líf Óm sf.


Nafn: Líf Ómur heilsumiðstöð.

Lögheimili : Ferjuvað 3, 110 Reykjavík,

Meðferðar rými: Lágmúli 4, 2.hæð

Netfang: info@lifomur.is, bokun@lifomur.is


Skilmálar

Líf Ómur sf. áskilur sér rétt til að hætta við pantanir, t.d. vegna rangra verðupplýsinga eða hætta að bjóða upp á vörutegundir fyrirvaralaust. Áskilinn er réttur til að staðfesta pantanir símleiðis.

 

Afhending og ábyrgð á sendingum

Pant­anir eru að jafnaði afgreiddar næsta virka dag eftir að pöntun berst. Sé vara ekki til á lager hefur Líf Ómur samband við kaupanda og upplýsir um áætlaðan afhendingartíma.

Vörur eru sendar með rekjanlegri sendingu í gegnum þann flutningsaðila sem kaupandi velur úr þeim afhendingarmöguleikum sem boðnir eru í vefversluninni.

Líf Ómur ber ábyrgð á vörunni þar til hún hefur verið afhent kaupanda eða öðrum aðila sem kaupandi hefur tilnefnt til að taka við henni. Ef sending týnist eða skemmist áður en hún er afhent skal kaupandi hafa samband við Líf Óm eins fljótt og unnt er. Líf Ómur sér þá um samskipti við flutningsaðila og vinnur að úrlausn málsins, svo sem með nýrri afhendingu eða endurgreiðslu eftir því sem við á.

Ef kaupandi velur sjálfur flutningsaðila sem Líf Ómur bauð ekki upp á flyst ábyrgð á vörunni yfir til kaupanda þegar varan hefur verið afhent þeim flutningsaðila.

Framangreint takmarkar ekki lögbundin réttindi kaupanda samkvæmt lögum um neytendakaup og lögum um neytendasamninga.

 

Verð á vöru og sendingakostnaður
Allar vörur í vefverslun eru með inniföldum 11% eða 24% vsk eftir því sem við á, ef þær eru virðisaukaskyldar samkvæmt íslenskum lögum, en sendingakostnaður bætist síðan við áður en greiðsla fer fram.

Við sendum allar vörur með Íslandspósti beint heim að dyrum. Sendingakostnaður er mismunandi eftir þyngd og stærð sendingar.
 

Að skipta og skila vöru
Veittur er 14 daga skilaréttur við kaup á vöru gegn því að framvísað sé sölureikningi sem sýnir með fullnægjandi hætti hvenær varan var keypt.
Varan þarf að vera ónotuð, í fullkomnu lagi og í sínum upprunalegu óskemmdu umbúðum þegar henni er skilað. Ef vara er innsigluð má ekki rjúfa innsiglið. Við skil á vöru er miðað við upprunalegt verð hennar, nema viðkomandi vara sé á útsölu eða á sértilboði við vöruskil. Þá er miðað við verð vörunnar þann dag sem henni er skilað.

​

Gölluð vara
Sé vara gölluð er viðskiptavinum boðin ný vara í staðinn og greiðum við allan sendingakostnað sem um ræðir eða endurgreiðum ef þess er krafist. Að öðru leiti vísast til laga um neytendakaup nr.48/2003 og laga um neytendasamninga.

​

​

​

bottom of page