top of page

Bókunarskilmálar Líf Óms

Hér má finna bókunarskilmála Líf Óms ásamt upplýsingum og skilmálum meðferðarpakka.

Með bókun tíma eða kaupum á meðferðarpakka staðfestir viðskiptavinur að hafa kynnt sér viðeigandi skilmála.

Bókun og greiðsla

Bókaður meðferðartími er skuldbindandi.

Stakir tímar: Greiðast jafnóðum að meðferð lokinni.

Meðferðarpakkar: Greiðast að fullu við kaup eða í tveimur hlutagreiðslum samkvæmt samkomulagi. Pakkinn virkjast á kaupdegi.

  • Pakki með 5 meðferðartímum gildir í 6 mánuði frá kaupdegi.

  • Pakki með 10 meðferðartímum gildir í 12 mánuði frá kaupdegi.

Meðferðarpakkar eru almennt óendurgreiðanlegir eftir að þjónusta samkvæmt pakkanum er hafin.

Óheimilt er að framselja ónýtta tíma til þriðja aðila. Þetta hefur þó ekki áhrif á lögbundin réttindi kaupanda.

Sé meðferðarpakki eða umsamin hlutagreiðsla hans ekki greidd á gjalddaga er stofnuð krafa í heimabanka.

Sé krafan ekki greidd innan tilgreinds frests kann hún að verða send í innheimtu að undangenginni lögbundinni innheimtuviðvörun.

Dráttarvextir og innheimtukostnaður geta bæst við í samræmi við gildandi lög og reglur.

Kaupandi ber ábyrgð á að bóka og nýta meðferðartímana innan gildistíma pakkans.

Ekki er veitt endurgreiðsla fyrir ónýtta tíma þegar gildistími pakkans er runninn út.

2

Afbókanir og skróp

Afbóka þarf bókaðan tíma með að minnsta kosti 24 klukkustunda fyrirvara.

Sé afbókað með skemmri fyrirvara en 24 klukkustundum eða ef skjólstæðingur mætir ekki í bókaðan tíma gildir eftirfarandi:

Stakir tímar: Greiða þarf tímann að fullu. Krafa er stofnuð í heimabanka með sjö daga greiðslufresti. Sé krafan ekki greidd innan tilgreinds frests kann hún að verða send í innheimtu að undangenginni lögbundinni innheimtuviðvörun. Dráttarvextir og innheimtukostnaður geta bæst við í samræmi við gildandi lög og reglur.

Meðferðarpakkar: Tíminn telst nýttur og dregst frá pakkanum.

Ef skjólstæðingur mætir of seint styttist meðferðartíminn sem því nemur, en fullt verð er innheimt.

Ef meðferðaraðili þarf að afbóka bókaðan tíma er skjólstæðingi boðinn nýr tími eins fljótt og unnt er.

3

Skipulag og samfella

Bil milli meðferðartíma er ákveðið í samráði við skjólstæðing með hliðsjón af þörfum, líðan og markmiðum.

Til að viðhalda samfellu í meðferðarferlinu og stuðla að því að meðferðarpakki nýtist innan gildistíma er mælt með að næsti tími sé bókaður í lok hvers meðferðartíma.

4

Persónuvernd og trúnaður

Líf Ómur leggur áherslu á trúnað og örugga meðferð persónuupplýsinga.

Upplýsingar sem veittar eru við bókun, greiðslu og meðferð eru aðeins skráðar og notaðar að því marki sem nauðsynlegt er til að veita þjónustuna, halda utan um samskipti og uppfylla lagaskyldur.

Upplýsingar eru varðveittar með öruggum hætti og aðgangur að þeim takmarkaður. Þeim er ekki miðlað til óviðkomandi.

Þjónustuaðilar sem sjá um bókanir, greiðslur, bókhald eða gagnavörslu kunna að vinna persónuupplýsingar fyrir hönd Líf Óms.

Persónuupplýsingar eru ekki varðveittar lengur en nauðsynlegt er miðað við tilgang vinnslunnar og gildandi lög.

Skjólstæðingur getur óskað eftir aðgangi að upplýsingum sínum, leiðréttingu þeirra eða eyðingu. Beiðni um eyðingu er afgreidd eins fljótt og unnt er, að því marki sem lög og aðrar skyldur Líf Óms heimila.

5

Síðast uppfært: september 2026

Líf Ómur sf.

Kt. 440521-1690

bottom of page