Þjónustan
Heilsa er ferðalag – ekki skyndilausn
Tíðniþerapía er heildrænt ferli þar sem markmið mitt er að hjálpa þér að skilja líkama þinn og sál betur og styðja við þig á leiðinni að auknu líkamlegu og andlegu jafnvægi og vellíðan.
💚 Ég legg áherslu á að vinna með þér út frá þínum þörfum og á þínum hraða.
Almennt gildir, að því lengur sem líkami og sál hefur verið í ójafnvægi, því meiri tíma getur stuðningur í átt að jafnvægi tekið.
Á sama hátt þarf nýtilkominn heilsuvandi oft styttri tíma.
Saman finnum við þá leið sem hentar þér best.
Ferlið:
-
Fyrsti tími – viðtal og greining
90–120 mínútur · 27.000 kr.
-
Eftirmeðferð
Helst innan viku · 70–75 mínútur · 16.000 kr.
-
Áframhaldandi meðferð
Skipulögð í samráði út frá þörfum, líðan og markmiðum
Tíðnigreiningar og meðferðir
Viðtal og greining - oftast fyrsti tími
Hvernig fer fyrsti tími fram?
-
Samtal og heilsusaga:
Við byrjum á að fara yfir heilsu þína, líðan og þau einkenni sem þú ert að upplifa. -
Tíðnigreining:
Framkvæmd er tíðnigreining sem gefur vísbendingar um hvar líkaminn gæti verið undir álagi eða í ójafnvægi. -
Yfirferð niðurstaðna:
Við skoðum saman niðurstöðurnar og setjum þær í samhengi við þína sögu og líðan. -
Tíðnimeðferð:
Í tímanum færðu grunnmeðferð á því sem mikilvægast er að vinna með fyrst.
Aðalmeðferðina úr greiningunni færð þú síðan í eftirmeðferð, sem þú kemur í helst innan viku. -
Einstaklingsmiðaðar ráðleggingar:
Þú færð leiðbeiningar og ráðleggingar sem taka mið af þínum þörfum og markmiðum.
Tíminn er 90-120 mínútur.
Aðrar mælingar

1
Bætiefnamæling
Ertu að taka fullt af bætiefnum og öðru en þú veist ekki hvort það er að gera líkamanum gagn?
-
Þú kemur með bætiefni og annað sem þú ert að taka reglulega og ég mæli hvort viðkomandi bætiefni styðji við orku og starfsemi líkamans, eins skoðum við hvaða bætiefni þú getur tekið saman án þess að virkni þeirra skerðist.
Tíminn er 60 mínútur.
2
Óþols mælingar og meðferðir
Mæling vegna ofnæmis og fæðu- og efnaóþols.
Tíminn er 60 mínútur.
Meðferðir vegna ofnæmis, fæðu- og efnaóþols.
Tíminn er 60 mínútur.
3
Styttri tímar
Orkubúst
Þessi meðferð styður við grunnorkuna þína, orkubrautir og endurnýjun frumna.
Tíminn er 45 mínútur
Orkustöðva jöfnun
Þessi meðferð styður við jöfnun orkustöðvanna í líkamanum.
Eykur orkuflæðið í orkusviði líkamans.
Tíminn er 30 mínútur
.png)