Það er nauðsynlegt að þvo bómullarvörurnar sem eru til jarðtengingar. Að þvo þær á réttan hátt mun ekki hafa skaðleg áhrif á þær heldur í raun hefur það þau áhrif að jarðtenging helst lengur í þræðunum. Þegar lakið er þvegið fer úr því líkamssviti og olíur úr húðinni sem geta komið í veg fyrir jaðrtengingu.
Við mælum með
að þvo lakið vikulega eða í það minnsta hálfsmánaðarlega
að þvo lakið í þvotta vél við 40°C
að nota þvottefni sem er laust við hörð efni og olíur (sjá þvottefni sem við mælum með)
að þurrka lakið annað hvort með því að hengja það upp eða í þurrkara á lægri hita en 65°C
að strauja lakið á lágum hita, ef þú vilt strauja það
Við mælum EKKI með
að þvo lakið með þvottefni sem inniheldur bleikiefni
að þvo lakið með mýkingarefni
að þvo lakið ekki með hvítunarefnum eða tæringarefnum (oxdent)
að þvo lakið ekki með þvottefni sem gefur sterka lykt hvort sem er efnalykt eða ilmkjarnaolíur
að þurrhreinsa lakið ekki
Bleikiefni, krem og olíur geta lagst á silfrið og komið þannig í veg fyrir að það leiði jarðtenginguna. Sama á við um mýkingarefni, það safnast utan á silfrið.
Vinsamlegast ath. líka að þvottaefnahólfið á þvottavélinni sé laust við leyfar af þvottefnum sem ekki henta fyrir þessar vörur áður en þvegið er.
Við ráðleggjum að bíða amk í klukkutíma með að leggjast á jarðtengdar vörur með silfurþráðum eftir að krem eða olíur hafa verið borin á sig.